Leggjum af stað eftir 3 daga!
Sviss - Bangkok (10.feb)
27.01.2011 - 07.02.2011
15 °C
Búið að vera stuð hérna í sviss. Búið að taka nokkra góða göngutúra, gefa öndunum brauð, fara á hlaupaæfingu með Snorra geðsjúkling, fara í bíó, fara til Zurich og Luzern.
Eitt af því fyrsta sem ég gerði var að fara á hlaupaæfingu með Snorra sem var dálítið bjartsýnt af mér. Eftir upphitun var ég við það að gubba og þá sagði Snorri mér að það næsta sem við myndum gera væri að hlaupa ..ef ég man rétt... 2x1000 metra, 1x2000 metra, 1x3000 metra og 1x1000 metra allt á fullri keyrslu. Það var viðbjóður.
Ég og Tinna kíktum til Zurich einn daginn, þar sem við hittum prófessor í ETH og skoðuðum bæinn. Eina sem er böggandi við Zurich er verðið og stæðin. Kíktum líka til Zurich á afmælisdaginn minn þar sem við átum pönnukökur og appelsínu safa, kostaði okkur rúmlega 7000 krónur. Ekkert spes við matinn, takk fyrir ekki neitt.
Kíktum í bíó eitt laugardagskvöldið hérna í Zug, var meira eins og leikhús heima, bar í lobby-inu og röðuð sæti, virkilega kósý. Sáum black swan, hún var allt í lagi, skil ekki alveg þessa rosalegu dóma sem hún er fá. 
Kíktum til Zurich núna síðustu helgi, rákumst á mótmæli gegn Moubarak í miðbænum, mótmælendurnir enduðu á því að sprengja hrikalegar tívolí bombur (hrikalegar á íslenskum gamlárs skala). Óeirðar löggan brunandi um allan bæ með ljósin á fullu. 
Fórum líka á flóamarkað í miðbænum. Aðallega gamalt sykursjúkt og drykkjusjúkt fólk að selja vörur á borð við brotna stóla og allsberar dúkkur. Hægt að gera hrikalega góð kaup á ýmsum bensínsstöðva DVD myndum og stolnum símum.
Ég og Tinna fórum niður að tjörn hérna í Zug og gáfum öndunum brauð, það varð algjört feeding frenzy þegar við tókum upp brauðið. Álftirnar voru nálægt því að ráðast á okkur.


Svo er það flug til Bangkok kvöldið 1.feb, jahú!..gay
Posted by viktoreina 07.02.2011 13:47 Archived in Switzerland Tagged sviss Comments (0)

